Siðareglur – Positive Performances
Hjá Positive Performances trúum við því að það þurfi að dafna til að ná árangri – og ná árangri til að dafna. Nálgun okkar byggir á mannauðsvísindum og jákvæðri sálfræði og einkennist af fagmennsku, virðingu og gagnsæi.
Þessar siðareglur móta siðferðilegan grunn allrar okkar starfsemi og gilda fyrir: stafræn námskeið (app), markþjálfun, vinnustofur, ráðstefnur, námskeið, leiðtogafræðslu og fræðslu í skólum og menntastofnunum.
1. Starfssvið
Við bjóðum upp á fræðslu og stuðning með viðurkenndum aðferðum úr:
- Jákvæðri sálfræði
- Leiðtogafræðum
- Markþjálfun
- Félags- og tilfinningafærni (PSC)
- Eflingu andlegrar heilsu
- Atferlis- og hugrænni sálfræði með vísindalegan bakgrunn
Við bjóðum ekki upp á meðferð, greiningar, né meðhöndlun á geðrænum röskunum.
2. Skýr afstaða
Positive Performances er
ekki heilbrigðisstofnun né meðferðaraðili. Engin þjónusta sem við bjóðum kemur í stað læknisfræðilegrar eða sálfræðilegrar meðferðar.
Markþjálfar okkar, leiðbeinendur og fræðarar eru
sérfræðingar í jákvæðri sálfræði, leiðtogafræðum, markþjálfun, náms- og starfsþróun, en
eru ekki klínískir sálfræðingar, nema sérstaklega tekið fram.
3. Virðing og fordómaleysi
Öllum sem sækja þjónustu okkar er mætt með virðingu, hlýju og án fordóma. Við styðjum við fjölbreytileika, jöfnuð og viðurkenningu sem grunnstoðir heilbrigðs og árangursríks starfsumhverfis
4. Trúnaður
Við heitum fullum trúnaði varðandi allar upplýsingar sem fram koma í einstaklings- og/eða hópavinnu, nema ef lagaleg krafa er um annað (t.d. hætta á sjálfsskaða eða annarra).
5. Sjálfstyrking og virk þátttaka
Við vinnum að því að efla sjálfstæði, innsæi og virkni viðskiptavina. Við hvetjum einstaklinga til að taka virkan þátt í eigin vexti og nýta innri auðlindir sínar (styrkleika, seiglu, HEROIC-líkanið o.s.frv.).
6. Fagleg handleiðsla
Teymi Positive Performances er skuldbundið til
faglegrar handleiðslu og endurmenntunar, til að tryggja gæði, fagmennsku og viðurkenndar aðferðir í allri okkar starfsemi.
7. Ábending um aðra fagaðila
Ef við metum svo að aðili hafi ekki lengur hag af viðskiptasambandinu sökum geðrænna vandamála munum við vísa áfram til viðeigandi heilbrigðisstarfsmanna (læknis, sálfræðings, geðlæknis o.s.frv.).
8. Fagleg ábyrgð
Allir samstarfsaðilar okkar skuldbinda sig til að fylgja þessum siðareglum, og eftir atvikum einnig siðareglum fagaðila sem þeir tilheyra (s.s. EMCC, ICF, FSP o.s.frv.).
9. Siðferði stafrænnar þjónustu
Allt efni okkar í appi, sjálfsmatsverkfæri og stafræn námskeið eru þróuð af sérfræðingum, byggð á vísindum þegar því verður við komið og koma ekki í stað meðferðar.
10. Skuldbinding við vísindi, gæði og áhrif
Allar aðferðir okkar og verkfæri (Thrive to Perform, Mental Health Mosaic, Réussir, símenntun) byggja á vísindalegum, reynslubundnum og menntandi grunni. Við vinnum að varanlegum breytingum – hjá einstaklingum, teymum og stofnunum.
Þessar siðareglur eru opinberar. Þær má skoða á netinu, hlaða niður eða óska eftir pdf eintaki frá okkur.